Súrefni
Um Súrefni
Surefni hóf starfsemi sína formlega í byrjun sumars 2021. Hugmyndin fæddist mörgum árum áður. Vandamálið var skýrt: Hamfarahlýnun var raunveruleg- og út frá Parísarsáttmála Sameinuðu þjóðanna mundu allir þurfa að gera sitt.
En hvað var hægt að gera? Það virtist allt of viðamikið að reyna að bjarga heiminum.

Hvernig gerir maður eitthvað stórkostlegt? Hvernig byggði maðurinn pýramídana, risavaxnar dómkirkjur og mikilfenglega turna? Jú... í litlum skrefum. Stein fyrir stein, vegg fyrir vegg, hæð fyrir hæð.
Svo við hugsuðum á sama hátt. Við ætlum að bjarga heiminum, með einu gróðursettu tré í einu. Flóknara er það ekki. Mun þetta leysa öll vandamálin tengd hamfarahlýnun? Nei. En þetta er skref í rétta átt.
Verkefnið okkar núna er að finna leiðina og að hrífa ykkur með okkur.
Bakvið Súrefnisverkefnið standa Egill Örn Magnússon og Aríel Jóhann Árnason.
Verkefni Aríels er framkvæmdastjórn. Hann er viðskipta- og tölvunarfræðingur að mennt og hefur unnið um árabil sem hugbúnaðarsérfræðingur og frumkvöðull.
Markaðsstjóri Súrefnis er Egill Örn Magnússon, viðskiptafræðingur og MBA. Hann hefur unnið sem verkefna- og framkvæmdastjóri iðnaðarfyrirtækja í mörg ár ásamt frumkvöðla- og þróunarvinnu í nýsköpun innan flutningageirans.
Verkefnið þitt, kæri gestur, er að taka þátt.
Vertu hjartanlega velkomin/nn í Súrefnissamfélagið.
Kær kveðja

- Aríel Jóhann Árnason, framkvæmdastjóri