Súrefnisskógurinn
Lýsing:
Einingasafn 3 samanstendur af íslensku skógræktarverkefni Súrefnisskógurinn er fyrsta verkefni Súrefnis og gróðursettur í samstarfi við Skógræktina.
Grunngerð Súrefnisskógarins er samansett úr birki, alaskaösp og sitkagreni.
Áætlað er að hver hektari af skógræktarlandi bindi um 500-600 tonn Co2e og að 2000 - 2500 plöntum sé gróðursett á hvern hektara. Áætlað er að hver gróðursetning Súrefnisskógarins standi í 50 ár og bindingin sem á sér stað er seld fram í tímann, ásamt einingunum sem koma til með að myndast (ex-ante) og er þetta út frá aðferðarfræði Skógarkolefnis og unnið áreiðanlega út frá ISO staðli 14064 og Tækniforskrift Stðalaráðs Íslands ÍST TS 92: 2022.
Koma allar ítranir Súrefnisskógarins til með að vera vottaðar þess bærum aðilum og skráðar í Loftlagsskrá.
Súrefnisskógurinn 2022
Fyrsti hluti Súrefnisskógarins er staðsettur við Markarfljót, stutt labb frá þjóðveginum og í beinni auglínu við Seljalandsfoss. Um 29.000 plöntur fóru ofan í jörðu í þessum fyrsta hluta verkefnisins.
Ath:
Ath: Ein eining samsvarar einu tonni koltvísýringsígildis (CO2e)
Verkefnasafn getur breyst út frá framboði eininga.
Athugið að þessar kolefniseiningar eru einingar í bið. Staðfesting um fullnýtingu þeirra (e. retirement) berst þegar völ er á. Athugið að Súrefni styður ekki staðhæfingar um kolefnishlutleysi ef kolefniseiningar í bið eru keyptar. Vegferð yðar í átt kolefnishlutleysis er hinsvegar hafin.
Verð eru með virðisauka.