Verkefni
Verkefni sem framleiða vottaðar kolefniseiningar.
Súrefnisskógurinn
Súrefnisskógurinn er fyrsta verkefni Súrefnis og gróðursettur í samstarfi við Skógræktina.
Grunngerð Súrefnisskógarins er samansett úr birki, alaskaösp og sitkagreni.
Áætlað er að hver hektari af skógræktarlandi bindi um 500-600 tonn Co2e og að um 2500 plöntur fari á hvern hektara. Áætlað er að hver gróðursetning Súrefnisskógarins standi í 50 ár og bindingin sem á sér stað er seld fram í tímann, ásamt einingunum sem koma til með að myndast (ex-ante) og er þetta út frá aðferðarfræði Skógarkolefnis og unnið áreiðanlega út frá ISO staðli 14064 og Tækniforskrift Stðalaráðs Íslands ÍST TS 92: 2022.
Koma allar ítranir Súrefnisskógarins til með að vera vottaðar þess bærum aðilum og skráðar í Loftlagsskrá.
.png)



Súrefnisskógurinn 2022
Fyrsti hluti Súrefnisskógarins er staðsettur við Markarfljót, stutt labb frá þjóðveginum og í beinni auglínu við Seljalandsfoss!
Rúmlega 25.000 plöntur fóru ofan í jörðu í þessum fyrsta hluta verkefnisins og stefnum við í það minnsta á að tvöfalda það magn í næstu gróðursetningu.
Súrefnisskógurinn er gróðursettur í samstarfi við Skógræktina en Aríel framkvæmdastjóri og Egill fjármálastjóri mættu hressir og tóku til hendinni með teymi Skógræktarinnar.