Súrefni og Búseti í samstarf
- Súrefni

- Jun 6, 2025
- 1 min read
Updated: 7 hours ago
Súrefni hefur hafið samstarf við Búseta með það að markmiði að stuðla að vottaðri kolefnisjöfnun í starfsemi félagsins.
Virkar vottaðar kolefniseiningar tryggja raunverulega kolefnisjöfnun með mælanlegri, varanlegri og sannprófaðri bindingu kolefnis samkvæmt viðurkenndum alþjóðlegum stöðlum. Með þessu samstarfi tekur Búseti virkan þátt í loftslagsaðgerðum með því að styðja við verkefni sem einblína á kolefnisbindingu, endurheimt vistkerfa og aðrar sjálfbærar lausnir sem vottaðar eru samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.
Samstarfið er liður í stefnu Búseta um samfélagsábyrgð og umhverfisvitund og endurspeglar vilja félagsins til að draga úr vistspori sínu og leggja sitt af mörkum til sjálfbærrar framtíðar.
Nánar hér:
.png)


