top of page

Súrefni og Hópbílar í samstarf

  • Writer: Aríel Jóhann Árnason
    Aríel Jóhann Árnason
  • May 31, 2025
  • 1 min read

Updated: 6 hours ago



Hópbílar hafa skrifað undir 4 ára samstarf við Súrefni um kolefnisjöfnun á gjörvöllum akstri þeirra fyrir Hafnarfjarðarbæ. Var þetta gert með ábyrgum hætti með notkun vottaðra, virkra kolefniseininga frá verkefni Ísorku og Súrefnis.


Ísorkuverkefnið er tímamótaverkefni á Íslandi sem mælir og vottar hvernig áhrifin af auknu aðengi rafhleðslustöðva spornar gegn bruna á jarðefnaeldsneyti.

Með þessarri aðgerð hafa Hópbílar tekið mikilvægt skref í sjálfbærni í takt við uppfærðar kröfur og skilgreiningar ábyrgrar kolefnisjöfnunar sem hægt er að lesa nánar um í skýrslu umhverfisráðuneytisins um kolefnismarkaði á Íslandi ásamt leiðbeiningum Umhverfisráðuneytisins um Ábyrga kolefnisjöfnun sem uppfyllir kröfur ÍST TS 92:2022 tækniforskriftar frá Staðlaráði um ábyrga kolefnisjöfnun og kröfusett ICROA um hið sama.



 
 
bottom of page