Ísorka - þú veist það ef það er vottað
- Súrefni
- Jan 2
- 1 min read
Updated: Apr 7
Fyrir tveimur árum lauk verkefni sem markaði tímamót í íslenskri kolefnisjöfnun og enn hafa ekki sést hér á landi sambærilegar kolefniseiningar sem endurspegla sömu gæði og áreiðanleika.
Ísorka og Súrefni þróuðu og innleiddu fyrsta verkefni landsins sem fékk útgefnar kolefniseiningar frá Verra. Verkefnið varð jafnframt það fyrsta sinnar tegundar í Evrópu þar sem rafhleðsluinnviðir fyrir rafbíla voru vottaðir undir Verified Carbon Standard.
Frá þeim tíma hefur verkefnið þróast úr frumkvæði yfir í virkan markað. Kolefniseiningar sem byggja á raunverulegri rafhleðslu og staðfestum losunarsamdrætti hafa verið keyptar og nýttar af fjölbreyttum aðilum í íslensku atvinnulífi.
Meðal þeirra eru Verkís, Hópbílar, Hagar, Pipar/TBWA, Búseti, Fjarskiptastofa og Magna. Þessir aðilar eiga það sameiginlegt að hafa valið að byggja sína kolefnisjöfnun á innlendum, mældum og sannreyndum verkefnum. Í stað þess að treysta á óbeina eða óljósa mótvægisaðgerðir hafa þeir fjárfest í lausn sem er rekstrartengd, gagnsæ og staðfest samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.
Verkefnið hefur þannig sannað að rafvæðing er ekki aðeins stefnumótun heldur framkvæmd sem hægt er að mæla, sannreyna og umbreyta í verðmæti. Innviðirnir standa áfram, notkunin vex og með henni myndast áframhaldandi kolefniseiningar sem tengja daglegan rekstur við alþjóðlegan markað.
Ísorka verkefnið er því ekki aðeins áfangi sem náðist fyrir tveimur árum.
Það er kerfi sem hefur síðan verið tekið í notkun, prófað í raunheimum og staðfest af markaðnum.
.png)